Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Stjórn deildar nautgripabænda hjá Bændasamtökum Íslands. Frá vinstri: Reynir Þór Jónsson, Davíð Logi Jónsson, Sigurbjörg Ottesen formaður, Sigrún Hanna Sigurðardóttir og Jón Örn Ólafsson.
Stjórn deildar nautgripabænda hjá Bændasamtökum Íslands. Frá vinstri: Reynir Þór Jónsson, Davíð Logi Jónsson, Sigurbjörg Ottesen formaður, Sigrún Hanna Sigurðardóttir og Jón Örn Ólafsson.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttaskýring 27. mars 2026

Nýr formaður deildar nautgripabænda

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Á deildarfundi nautgripabænda hjá Bændasamtökum Íslands (NautBÍ) voru helstu áherslumál búgreinarinnar slípuð. Ályktanir þaðan voru svo sendar til frekari umræðu á Búnaðarþingi á miðvikudaginn.

Deild nautgripabænda kaus nýjan formann á deildarfundi núna á þriðjudaginn. Rafn Bergsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandandi setu og var Sigurbjörg Ottesen, bóndi á Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshrepp, kosin í hans stað, en hún hefur verið í stjórn NautBÍ um árabil. Á fundinum þurfti jafnframt að kjósa um alla aðra stjórnarmenn og kom Davíð Logi Jónsson nýr í stjórn. Aðrir sitjandi stjórnarmenn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu og fengu allir endurnýjað umboð.

Helstu áherslumál deildar nautgripabænda þegar kemur að nýjum búvörusamningum voru samþykkt á deildarfundi þeirra á þriðjudaginn. Fyrst er að nefna brýningu um að stefnt verði að stöðuleika og uppbyggingu í greininni með því að viðhalda framleiðslustýringarkerfi í mjólkurframleiðslu. Jafnframt er kallað eftir að stórauknu fjármagni verði varið í búvörusamningana, fjárfestingastuðningur verði aukinn, tollverndin efld og ítrekað að ekki skuli verja fjármagni sem er ætlað í nautgripasamninginn í önnur málefni.

Kúabændur vilja eins að hagræðingarkrafan sem verið hefur í búvörusamningunum frá 2005 verði tekin út. Þá benda þeir á að verðtryggingarákvæði skuli halda gildi sínu út samningstímann og verði fylgt eftir árlega.

Búgreinin vill jafnframt að tryggt verði að grunnstoð beingreiðslna verði framleiðslutengdur stuðningur og að aukið fjármagn verði sett í þann lið. Eins eigi að halda fjárstuðningi til aðgerða í loftslagsmálum aðskildum þannig að þær skerði ekki annan stuðning.

Í rökstuðningi segir að afkoma kúabænda hafi verið neikvæð á árunum 2021 til 2024 samkvæmt gögnum frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML). Bændur hafi þurft að greiða á bilinu 11 til 15 krónur með hverjum innlögðum mjólkurlítra. Samkvæmt nýjum verðlagsgrundvelli hafi rekstrartap mjólkurframleiðenda verið 107,6 krónur á lítrann í lok árs 2025.  Eins hafi bændur í nautakjötsframleiðslu þurft að greiða með sinni framleiðslu, þó svo að þróunin hafi verið í rétta átt á því sviði.

Þá skoruðu fundarmenn á stjórn deildar nautgripabænda í Bændasamtökum Íslands (NautBÍ) að hefja viðræður við atvinnuvegaráðuneytið um breytingu á reglugerð um kjötmat á þann veg að kvígur sem átt hafa kálf geti flokkast í UN flokk fram að 30 mánaða aldri. Með tilkomu kyngreinds sæðis sé fyrirséð að fjöldi kvíga muni aukast. Mjólkurframleiðendur geti því haft hag af því að lóga kvígum eftir burð fyrir 30 mánaða aldur falli þær af einhverjum ástæðum ekki að framleiðsluskilyrðum.

Kúabændur vilja jafnframt að sæði úr íslenska mjólkurkúastofninum verði ekki aðeins kyngreint fyrir erfðaefni sem gefi af sér kvenkyns gripi, heldur vilja þeir líka geta valið sér að fá nautkálfa. Bændur geti því sætt sínar allra bestu kýr með svokölluðu Y sæði til þess að framleiða kynbótanaut.

Fundurinn beindi því enn fremur til stjórnar NautBÍ að gripagreiðslur verði uppfærðar miðað við verðlagsgrundvallarbúið. Er það vegna þess að samkvæmt nýjum verðlagsgrundvelli er meðalbúið með 61 árskýr, en ekki séu skerðingar á greiðslum fyrir bú með allt að 60 árskúm.

Skylt efni: nautgripabændur

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki
Fréttir 10. ágúst 2026

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki

Landbúnaðarstyrkir Evrópusambandsins virðast ætla að halda velli í næstu sjö ára...

Háskóli Íslands gerir moltu
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vé...

Þröstur Norðurlandameistari
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tid...

Atvinnulífssýning dagana  19. og 20. september
Fréttir 10. ágúst 2026

Atvinnulífssýning dagana 19. og 20. september

Atvinnulífssýning verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðarkróki í haust eða dagana...

Selja blóm, steina og tré
Fréttir 10. ágúst 2026

Selja blóm, steina og tré

Hjónin Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir hafa verið í plöntuframlei...

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna
Fréttir 7. ágúst 2026

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna

Þrettán sóttu um starf forstjóra Stofununnar atvinnuveganna. Starfið var auglýst...

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera
Fréttir 7. ágúst 2026

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa fengið veglegan Evrópustyrk vegna sjálfbær...

Moskítóflugur og mítlar
Fréttir 6. ágúst 2026

Moskítóflugur og mítlar

Vöktun á moskítóflugum, mítlum og lúsmýi heldur áfram í sumar. Almenningur er hv...